Brúðkaup
Ég hef unnið í mörg ár við fjölbreytt verkefni bæði á Íslandi og Noregi síðan 2004. Með árunum hef ég áunnið mér breiða reynslu í bæði staðsetningar- og stúdíómyndatöku, meðal annars í portréttum, fjölmiðlum og skapandi verkefnum fyrir fyrirtæki. Ég legg mikla áherslu á fagmennsku, góð samskipti og að skapa rólegt og skemmtilegt andrúmsloft í tökum. Markmiðið mitt er að gera daginn léttari, skemmtilegri og skilja eftir myndir sem þið elskið í mörg ár.

Brúðkaupsmyndataka – Verðskrá 2026
Pakkinn „Klassískur“
Verð: 220.000 kr.
Fyrir brúðkaup þar sem lögð er áhersla á gæði, fagmennsku og nákvæma eftirvinnslu.
Innifalið:
-
4–5 klst. myndataka
-
Undirbúningur + athöfn + stutt pörumyndataka
-
150–250 vandaðar, fullunnar myndir
-
Myndir afhentar í stafrænu galleríi í fullri upplausn
-
Fagleg eftirvinnsla á öllum myndum
-
Ráðgjöf fyrir daginn (tímalína, staðir o.fl.)
Pakkinn „Lúxus + Dróni“
Verð: 290.000 kr.
Fyrir pör sem vilja stærri upplifun, auknar sjónarhorn og efni tilbúið fyrir samfélagsmiðla.
Innifalið:
-
6–7 klst. myndataka
-
Undirbúningur + athöfn + pörumyndataka + hluti af veislu
-
Drónamyndataka (veður og aðstæður ráða framkvæmd)
-
250–400 vandaðar, fullunnar myndir
-
Reels myndband (30–45 sek.) fyrir samfélagsmiðla
-
Stafrænt gallerí í fullri upplausn
-
Fagleg eftirvinnsla á öllum myndum + litabreyting sem hæfir reel-inu
-
Ráðgjöf og skipulag fyrir daginn